Draumóramaður

Eitt sinn var maður sem átti sér draum, draum um að draumar hans rættust. Árin liðu er tíminn taldi en dag einn orð honum bárust: Árin líða en ei hafið þér þróast í þann skilning að sjáir þú í trausti þá er það þér mögulegt, og draumar eru bara draumar! Þessi orð breyttu lífi mannsins, en rættust draumar hans?

Maðurinn sá þá fyrir sér ef hann gæti séð það eins og draum þá gæti hann lifað því. Svo hann lét á það reyna og sá sér stóran draum en varð það hans líf?

Nei því draumar eru bara draumar og því var sýnin ekki næg en þó gat hún sannarlega undirlétt ef notuð væri rétt.

Eftir margar tilraunir með sýn á markmið voru vonbrigði honum efst í hug! Þegar ný orð bárust og sögðu: Hugrekki felst ekki í að vera óttalaus, heldur felst hugrekki í að takast á við óttann!

Þessi orð breyttu lífi mannsins þar sem vonbrigði voru honum mikill ótti af sökum fyrri rauna. Maðurinn ætlaði sér því næst að láta á óttann reyna og sá fyrir sér stóra sýn sem hann ætlaði að hoppa á og tækla í einu stökki! En gerði hann það?

Þvert á móti! Hann vissi ekki hvar átti að byrja því hann kunni ekki á þróunina þó sýnin væri skýr!

Því minnkaði hann alltaf sýn sína í smærri og smærri til að finna byrjun sem hvergi var nærri. En dag einn bárust honum orð að vana: Þig dreymir enn og brotið hugrekki hefur því að skipulag þig skortir!

Hann settist því niður, lét sig dreyma og byggði upp sinn hug til að sigrast á næsta verki, skipulag af draum sem endaði með meistaraverki!
                                                                                                                                by Einar B Bragason

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Minn Hugur
Minn Hugur
GURU
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • UA

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 292

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband